Xerjoff 1861 Naxos
Nýr ilmur væntanlegur — fáanlegur frá 15. maí.
Xerjoff 1861 Naxos er einn þekktasti og vinsælasti niche-ilmurinn frá Xerjoff — hlýr, dýr og mjög eftirminnilegur ilmur með hunangi, tóbaki, vanillu, sítrus og lavender.
Ilmurinn opnast ferskur og fágaður með bergamót, sítrónu, lavender og örlitlu reykelsi. Þessi byrjun gerir ilminn bjartan og elegant áður en hann verður hlýrri og dýpri á húðinni.
Í hjartanu koma fram hunang, kanill, cashmere-tónar og jasmine sambac. Þessi blanda gefur Naxos sinn þekkta karakter — mjúkan, kryddaðan, örlítið sætan og mjög lúxuslegan.
Í grunninum mætast tóbakslauf, vanilla og tonkabaunir. Útkoman er hlýr, sensual og statusríkur ilmur með fallegri endingu og áberandi slóða.
Naxos er fullkominn fyrir þau sem vilja sæta og hlýja tóbaks-vanillu, en með ferskari og fágaðri byrjun. Hann er ekki þungur sígarettureykur, heldur mjúkt, hunangskennt tóbak með vanillu, kryddi og mediterranean elegans.