Marc-Antoine Barrois Encelade EDP

7 000 Kr

Marc-Antoine Barrois Encelade er grænn, viðarkenndur leðurilmur sem kom út árið 2022. Ilmurinn var skapaður af Quentin Bisch og byggir á sterkum andstæðum: ferskleika og hita, birtu og skugga, gróskumikilli náttúru og reykkenndri dýpt.

Í upphafi kemur fram ferskur, safaríkur og örlítið súr rabarbari. Í hjartanu blandast þurr Atlas-sedrusviður við kraftmikinn og reykkenndan leðurakkord. Grunnurinn verður hlýrri og mýkri með vetiver, kremkenndum sandelviði og tonkabaun.

Encelade er sérstakur niche-ilmur með skýran karakter. Grænn rabarbarinn gefur honum ferska og lifandi opnun en leður, vetiver og viðartónar skapa dýpt, hlýju og langvarandi slóð.

Ilmurinn hentar þeim sem vilja óvenjulega blöndu af ferskum grænum tónum, reykkenndu leðri og fáguðum viði. Með ilmvatnsprufu getur þú prófað hvernig Encelade þróast á eigin húð áður en þú velur stærri flösku.


2ml - 1.400kr
3ml - 2.100kr
5ml - 3.500kr





2ml (3 til á lager)
3ml (5 til á lager)
5ml (5 til á lager)
10ml (4 til á lager)



+
17 til á lager