Karfan þín er tóm
VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferlinu.
VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferlinu.
LVS – Laine Veide Hár og Snyrtistofa er í Spönginni í Grafarvogi. Hjá okkur færðu hársnyrtingu, sugaring, hand- og fótsnyrtingu, meðferðir fyrir augabrúnir og augnhár, andlitsmeðferðir og varanlega förðun – allt á einum stað.
Við leggjum áherslu á fagmennsku, hreinlæti og persónulega þjónustu. Í upphafi hverrar meðferðar hlustum við á óskir þínar og veljum það sem hentar þér best.
Við vinnum eingöngu með faglegum vörum, meðal annars frá Wella, L’Oréal Professionnel, Kevin Murphy, Kérastase, Joico, Olaplex og Radeq Lab. Margar af vörunum sem við notum á stofunni fást einnig í vefversluninni okkar.
Hjá LVS starfa reyndir sérfræðingar sem hver hefur sitt fag. Þú velur meðferðina – og getur valið þinn fagmann í bókuninni.

Eigandi stofunnar. Hefur unnið við sugaring frá 2016 og er dreifingaraðili Radeq Lab á Íslandi. Leggur mikla áherslu á þægindi og vellíðan viðskiptavina. Talar íslensku, lettnesku og rússnesku.

Sérhæfð í sugaring fyrir karla – líka brasilísku – og tekur einnig vel á móti konum. Fagleg, hlý og leggur áherslu á þægindi og hreinlæti. Talar ensku, litháísku, rússnesku, spænsku og þýsku.

Yfir 20 ára reynsla, meðal annars á hárgreiðslustofum í Kænugarði. Sérfræðingur í flóknum litunum eins og AirTouch og í nákvæmum, klassískum klippingum fyrir dömur og herra. Sækir reglulega námskeið og fylgist vel með nýjustu tækni. Talar rússnesku, úkraínsku og ensku.

Yfir 10 ára reynsla af varanlegri förðun – náttúrulegar augabrúnir, augu og varir. Einnig litun, mótun og laminering á augabrúnum og augnhárum. Talar rússnesku, úkraínsku og ensku.

Fagmenntuð og sækir reglulega námskeið til að bæta við sig. Gefur sér góðan tíma fyrir hvern viðskiptavin og er einstaklega nákvæm í öllu sem hún gerir. Mótun, litun og laminering á augabrúnum og augnhárum, ásamt andlitsmeðferðum. Talar rússnesku, úkraínsku og ensku.

Augnháralengingar frá 2021. Velur útlit sem hentar hverjum og einum, og margir viðskiptavinir hennar koma aftur og aftur. Talar ensku, litháísku og rússnesku.

Yfir 6 ára reynsla. Einstaklega vönduð naglaframlenging og sérstaklega falleg French- og ombre-áferð. Talar reiprennandi ensku, auk rússnesku, úkraínsku og pólsku – og það er gaman að spjalla við hana.

Evrópskt meistarapróf í naglafræði og í faginu frá 2018, meðal annars á virtum stofum í Ríga. Fótsnyrting er hennar sérgrein. Talar rússnesku, lettnesku og ensku.

Lærði í Lettlandi, bætti við sig framhaldsnámi á Íslandi og heldur áfram að sækja námskeið. Hand- og fótsnyrting, naglaframlenging og naglaskraut, auk LED-augnháralenginga. Áreiðanleg og vandvirk. Talar rússnesku og lettnesku.
Spöngin 33–39 (2. hæð), 112 Reykjavík
Opið mánudaga–laugardaga 10–18
Sunnudaga eftir bókun
Við svörum fljótast skriflega – í gegnum formið á síðunni eða á info@lvs.is. Einnig má senda okkur skilaboð á Messenger. Á stofunni erum við með viðskiptavini í stólnum og getum því sjaldan svarað símanum. Tíma bókar þú á netinu allan sólarhringinn.