Karfan þín er tóm
VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferlinu.
VSK innifalinn. Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferlinu.
Skilmálar þessir gilda um öll kaup á vöru og þjónustu í vefverslun LVS á lvs.is. Með því að staðfesta pöntun samþykkir kaupandi skilmálana. Um kaupin gilda m.a. lög um neytendakaup nr. 48/2003, lög um neytendasamninga nr. 16/2016 og lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu nr. 30/2002.
Sugaring Studio ehf.
Kennitala: 660618-2280
VSK-númer: 131936
Spöngin 33–39 (2. hæð), 112 Reykjavík
Sími: 777 2330 · Netfang: info@lvs.is
Samningur um kaup kemst á þegar kaupandi hefur greitt pöntun og fengið staðfestingu í tölvupósti. Við áskiljum okkur rétt til að hætta við pöntun, t.d. ef vara er uppseld eða verð rangt skráð vegna villu. Í slíkum tilvikum er kaupanda tilkynnt um það og greiðsla endurgreidd að fullu.
Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt. Sendingarkostnaður bætist við og kemur fram áður en pöntun er staðfest. Hægt er að greiða með greiðslukortum (Visa og Mastercard). Greiðsla fer fram í gegnum örugga greiðslugátt og við fáum ekki aðgang að kortaupplýsingum.
Sjá nánar í Sendingar og afhending.
Kaupandi hefur 14 daga rétt til að falla frá kaupum. Sjá nánar í Skilaréttur.
Ef vara reynist gölluð á kaupandi rétt á viðgerð, nýrri vöru, afslætti eða endurgreiðslu í samræmi við lög um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi skal tilkynna um galla innan hæfilegs tíma eftir að hann varð hans var. Kvörtunarfrestur er tvö ár frá afhendingu vöru. Hafðu samband á info@lvs.is og sendu mynd af vörunni ef hægt er. Sendingarkostnaður vegna gallaðrar vöru er greiddur af okkur.
Gjafakort gilda í fjögur ár frá útgáfudegi og má nota bæði í vefverslun og á stofunni. Gjafakortum er ekki hægt að skipta fyrir peninga.
Við leggjum okkur fram um að upplýsingar og myndir af vörum séu réttar. Litir geta þó birst örlítið öðruvísi á skjá en í raun. Við áskiljum okkur rétt til að breyta verði og vöruframboði án fyrirvara og leiðrétta augljósar villur.
Farið er með allar persónuupplýsingar sem trúnaðarmál. Sjá nánar í Persónuverndarstefnu.
Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Ef ágreiningur rís sem ekki tekst að leysa með samkomulagi getur kaupandi leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa (kvth.is). Mál skulu að öðru leyti rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Skilmálar þessir gilda frá 13. október 2026.